Spaða ásinn

Mættur á svæðið

24.09.2007 21:21:03 / siggirunki

Hlusta á Baggalút og ég ferðast aftur í tímann.

Enn reyklaus og það er ekki auðvelt,, það líður ekki sá dagur að mig langar ekki í sígó,,, sígó,, sígó,, sígó... En ég ætla ekki að ergja ykkur meira á því....

Sigfús! Mamma söng studum Siggavísurnar fyrir mig ekki við mikinn fögnuð minn þar sem kvæðið endar á "og aumingja Siggi fór grátandi heim". En ég var þó snöggur að finna tvist á því þar sem mér fannst með einsdæmum gaman að syngja. Ég endaði þessvegna alltaf lagið á að segja "en það var ekki ég,,, Það var Siggi Þói frændi" haha..

Píparastarfið gengur vel nú er ég buinn að læra að leggja dren, gólfhita, snjóbræðslu, frárennsli, tengja blöndunartæki og hvaðeina,, ég veit t.d hvað trekvarttommu nippilhné álpex er. Og fleira eins og einstreymisloki, neysluvatnskista, hampur, mak, trukkprófun, KAFFI! og MATUR!. Vefst ekki fyrir mér. HAHA!

Já já ég er ennþá að koma mér á skrið í blogginu,, maður er bara lítið heima og ef maður dettur einhverstaðar í tölvu þá hættir manni frekar til að skoða fekar en skrifa.

Já ég fór í Húsdýragarðinn í gær og skoðaði næstskrítnustu dýrin í garðinum (á eftir múmínsnáðanum) sem voru þessar yndislegu hunangsflugur... Þetta bara hafði ég ekki hugmynd um að hunang væri framleitt hérna á Íslandi en það eru víst 15 býflugnabændur með hunangsframleiðslu á landinu. Og ég er nú ekki vanur að láta íslenskar afurðir framhjá mér fara. Mér þykir þetta mjög tilkomumikið og ætla mér að nota þetta grimmt á veitingastaðnum VOX á Hilton Reykjavik Nordica Hotel.

Stikkilsberjasultan heppnaðist ekki nógu vel,, hún stífnaði ekki nóg en er mjög góð á bragðið. Ég fór að ráðum Sigfúsar og minnkaði sykurmagnið og þessvegna er mjög ferskt berjabragð af henni.. Ég þarf bara að taka hana úr krukkunum og smella smá pectine í hana þá verður hún pottþétt.

Maríuuppskeran á Bollastöðum var vonum framar,,,,,, Þar mátti sjá dí-sætar gulrófur, stórar og bragðgóðar næpur (bara aldrei séð eins stórar), fallegar dverggulrætur, Bollastaða rauðar, Bollastaða Gullauga og Bollastaða premier. Ótrúlegt.

Svo er ég að fara til Skotlands eftir mánuð,, með Baggalút í æfingarbúðir fyrir þátttöku mína í Bandinu hans Bubba hahahaha.

Kveðja

Spaða ásinn


» 10 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 08:06:08 / siggirunki

Það brennir peninga

Það er föstudagsmorgun,,, klukkan er ca.8 og ég er að bíða eftir að Guðrún komi heim úr ræktinni svo ég geti farið í vinnuna. Eðlilegast væri að ég væri sofandi alveg þangað til hún kemur heim en núna eftir 6 reyklausa daga þá vakna ég bara við fyrsta píp í klukkunni,,, ekkert snooze. Ánægjulegt,,, svo ég sest bara niður með kaffið sem ilmar svo vel og set óhreint í þvottavél. HaHa...

Ég var að fá mér nýjan bíl,,, mjög fallegur Avensis.. ég keypti hann af eihverjum 17 ára strák sem hálf grét þegar hann afhenti mér lyklana,, hann fékk minn gamla í staðinn. Uss.... hann grét og ég brosti eins og Grinch,,, eða mér leið allavega eins og hann, ég meira að segja sagði stráknum að ef hann vildi þá mætti hann koma 2-3svar í mánuði og bóna ef hann vildi... haha. Nei hann þurfti eitthvað að minnka útgjöldin.

Trúiði því að í hverjum mánuði eyddum við Guðrún 38000kr í sígarettur sem gerir 464000 á ári? Og tala nú ekki um tímann sem fór í að reykja þetta allt, eins og staðan er orðin í dag ÚTI!!!!!! Haha,, hvað maður er heimskur. En það er mjög þæginlegt að hætta núna því það reykir enginn inni,,,,

Guðrún komin, ég rokinn,,

bæjó

 

Spade


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 23:02:57 / siggirunki

DEOdeoDEOdeo

MUUUUUUUU!!!!!!!

 

Jæja sumarið búið og veturinn á leiðinni,, nú er ég búinn að tína sólber, rifsber, aðalbláber og stikilsber mín fyrsta almennilega sultugerð gengur svona upp og ofan. Rifsberjahlaupið geggjað,, sólberjahlaupið hljóp ekki nógu langt hjá mér,,,, þarf að tæma allar krukkurnar og smella í hana pectine. Aðalbláberjasultan krydduð með íslensku garðablóðbergi tíndu við Bollastaði í Kjós slær gjörsamlega í gegn. Örlítill kanill, smá negull, lakkrísrótarbrot, valhumall, sortulyng, lapacho og ýmislegt fleira skemmtilegt þar á ferðinni. Algjör þruma með pönnsunum á sunnudögum. Stikilsberjasultan er ekki enn komin í gang.

ÉG er kominn í fæðingar(feðra)orlof haha,, í þrjá mánuði streit,,, svoleiðis að mér datt í hug að reyna að aðstoða tengdapabba eitthvað með pípurnar á meðan...ekki orð meira um það...

Í næstu viku er ég að fara að elda ofan í Forseta Íslands og frú,, Arngrím, Hertogann af Kent og konuna mína svo örfáir séu nefndir. Haha,, Ég semsagt brýt fæðingarorlofið aðeins upp og stelst á vaktina eitt kvöld til að elda fyrir þetta heiðursfólk.

Já og svo er verið að gera lokatilraun til að hætta að reykja,, hmmm liðnir 3 dagar, ..tikk takk tikk takk,, er að verða crazy,, en ég ætla ekki að falla í þetta skipti. Nú er þetta fyrir alvöru,,, annars er alrei að vita hversu veiklyndur maður getur verið,,, þetta er mjög erfitt!!!! Þið sem ekki hafið prófað að hætta að reykja,,, getið ekkert gert nema hvatt mann. Er það ekki?

Unnur er orðin rúmlega 4 mánaða og er búin að fara með mér 2svar í sund,, og tölvan er komin úr viðgerð svo að nú get ég ekki annað en sett inn myndir sumarsins inn á Barnaland á næstu dögum. Hún stækkar hratt skvísan.

Mér var að detta í hug .....nei leyndó

 

Kvssst

 

Spaðinn


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 23:21:45 / siggirunki

Newbie: Deng deng

Haha, takk fyrir peppið,,,, Ef ég á að segja ykkur satt,, þá féll ég ofan í playstation gryfju,, ég er búinn að vera að spila “the sims bustin out” af öllum leikjum, haha,, ég er semsagt að verða búinn með hann.. Þetta byrjaði allt þannig að ég fór í heimsókn með krílið heim til ömmu og afa á Bollastöðum og aldrei slíku vant var ein laus tölva á heimilinu og það sú besta hehe... Silja var ekki heima svo ég fór og kveikti á vélinni hennar og fann þennan skemmtilega leik sem heitir Sims 2 Pets,,, ég fékk lánaðan sims 2 diskinn og fór heim og installaði honum í þessa tölvu.. Svo kemur það upp úr krafsinu að tölvan slekkur alltaf á sér þegar hún þarf eitthvað að reyna á sig.... aaarrrggghhhh!!!! Ég tók mig til og skrúfaði hana í sundur og þreif hana að innan. Þ,e blés rykið innan úr henni og hreinsaði kæliviftuna,,,, þetta tóks mér án þess að laska tækið mikið. En all kom fyrir ekki,, hún slekkur enn á sér... Eins mikið spenntur og ég var orðinn fyrir að spila leikinn þá varð ég að láta gömlu palystation nægja...:( 

Annar í hvítasunnu: Þá ætla ég að láta skíra dótturina,, skírnin verður heima í sveit á Bollastöðum og verður fjölskyldan að mestu leyti viðstödd, að frátöldum Sigúsi, Bylgju, Rakel Talíu og Afa.. Afi er nefninlega að fara vestur að smíða einhvern sólpall með Einsa frænda... Sigfús og famlí búa náttl í Danmörku og koma ekki fyrr en eftir miðjan júní... En það verður bara að vera þannig... það er ekki alltaf hægt að koma öllum saman... 

Svo er leikurinn á morgun!!! Áfram Liverpool. Ég hvet snjalla leikmenn til að skrá sig í Dramadeildina íslensku, www.draumadeildin.isenn er mikill möguleiki á góðum árangri fyrir þá sem ekki eru skráðir. Það eru bara búnar 2 umferðir.... Áfram HK!!! 

Svo gátan: Pabbi var að tína epli. Fimm þeirra fallegustu hefur hann sett í körfu. Hvernig getur hann skipt skipt eplunum á milli fimm barna þannig að eitt epli verði eftir í körfunni?

 

Kveðja

Spade 

 


» 17 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 18:19:08 / siggirunki

zzzzzzz.... 99997 kindur... 99998 kindur....99999 kindur ha? Halló! Góðan Daginn

Hvernig er það? Núna er liðin rúmlega vika frá síðustu fréttum hérna ú Kóngsbakkanum,, svo að það hlýtur að vera mjög mikið að frétta, já svaka mikið......10... 15... 20 min?????? Hmmmm. 

Jú,, hér er búið að fara með barnið á kjörstað í vagninum það var rosa fjör,, farið í torfærur upp brekkuna í vagninum,,, ég fór út í garð snemma á kosningadag og tók þátt í hreingerningardegi blokkarinnar og eftir það bauð húsfélagið upp á pylsu og bjór,, svo að ég fékk mér bjór í fyrsta skiptið í 2 mánuði haha,, svo fékk ég mér nokkra um kvöldið líka, fór í Eurovision/kosninga/afmælispartý hjá Kjartani hérna á neðstu hæðinni... Kom heim um 12 leytið (upp stigann) var búinn að drekka svona 8-10 bjóra yfir allan daginn frá svona 14.00 – 23.00 og ég var svo veikur að ég ældi, með hausverk og leið alveg ógeðslega illa.... Daginn eftir (Sunnudag) gat ég ekki einusinni staðið upp úr sófanum til að ná mér í vatnsglas!!!!!!!!!!! Segið mér.... er eðlilegt að maður sem greinilega hefur aldrei verið þunnur og hefur nú oftar en ekki drukkið meira en nokkra bjóra og verið svona ágætlega drukkinn og skemmtilegur,,,, fái allt í einu að kynnast því hvað er að vera virkilega timbraður og það eftir að hafa rétt fundið á sér????? Maður hefur nú alveg orðið slappur (að ég hélt þunnur)áður en fyrr má nú aldeilis.........ég hef nú alltaf getað staðið upp.  Ég þarf að fara að koma mér í æfingu aftur,,,,,,ímyndið ykkur ef ég hefði nú fengið mér nokkra snafsa líka??????? 

Allavega þá kaus ég Samfylkinguna. Ykkur hin sem ösnuðust til að kjósa stjórnina enn einusinni bið ég bara vel að lifa næstu árin,, þið kölluðuð þetta yfir ykkur,, Kusuð fyrrverandi fanga og ráðherra sem keyra um á 18 milljón króna Benzum með einkabílstjóra alla daga auk þess að fara í utanlandsferðir sem kosta hver um sig meira en allar þær utanlandsferðir sem ég hef farið í til samans og þó hef ég týnt töskunni minni í eitt skiptið og þurft að endurnýja allt sem í henni var á áfangastað. Allt fyrir skattpeningana sem ég hélt að flestir vildu eyða í börnin okkar, ömmur okkar og afa eða heilbrigðiskerfið,,,,,, TIL HAMINGJU ÍSLAND!!!!!!!!!!!!!!!  KJÁNAR!!!! 

Og hvað er með það að allir séu svona fúlir útaf því að Eiríkur komst ekki í gegnum undanúrslitin,,, og hann sjálfur!!!! Jújú allt í lagi með að kvarta undan því að fyrirkomulag keppninnar sé eitthvað í ólagi en lagið okkar fannst mér nú bara ells ekki nógu gott til að eiga roð í meirihluta hinna laganna J Og veit einhver af hverju Ítalía tekur ekki þátt???? 

Múmín var ekki lengi að svara gátunni,,, að sjálfsögðu lætur maður einhvern annan brjóta eggið,,, Þórir minn ég vona að eggið standi ekki í þér ef þú varst að reyna að gleypa það í heilu lagi hahahahaha.... Óli? hmmmmm  ok gott svar en ekki rétt svar....

 Gáta: Í gömlu Indversku ævintýri segir: Í Shahjankur var blindur betlari sem átti bróður sem dó. Í ævintýrinu segir líka: Maðurinn sem dó átti engan bróður. Er þetta tóm vitleysa? Hvernig var betlarinn annars skyldur manninum sem dó. 

Hlakka til að fara aftur að vinna 

Spaðinn


» 13 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 16:36:02 / siggirunki

1 kind, 2 kindur, 3 kindur, 4 kindur, 5 kindur.............

Það er eitthvað svo lítið að segja núna þessa dagana,, maður er bara hérna heima að láta barnið ropa, og skipta á kúkableyjum.. Ég hef verið að brainstorma fyrir nýjan matseðil sem við ætlum að setja í gang í vinnunni í lok mánaðarins. Allt að gerast í vinnunni meðan maður er í fríi,, nýr chef,, verið að ráða 2 nýja kokka og hitt og þetta,, rosa fjör. 

Er búinn að gera rice crispies kökur fyrir gesti og gangandi, svona litla bita sem mamma gerði alltaf fyrir barnaafmælin hjá okkur.... Ljósmóðirin sagði við okkur Guðrúnu að við fengjum 10+ í einkunn fyrir að vera góðir foreldrar.... (kannski það séu kökurnar)? Er að leita mér að góðri uppskrift af muffins til að gera í dag. Hahaha,, ég hef aldrei haft svona mikinn tíma aflögu.... kannski maður leggi bara einn kapal J

 Svo er nú að vísu fullt hægt að gera svosem,, ég á eftir að setja bílinn á sumardekkin,, skella sér í ljós,, fara og kaupa strengi í gítarinn sem hefur verið án strengjar í mánuð,, þrífa stigaganginn, líma mekk hornið í gólfinu niður,, byrja að skrifa jólakortin,, læra eurovision lagið utanaf,, dusta rykið af veiðigræjunum og fleira og fleira.....

Ætli Evert verði ekki fyrstur að svara rétt,,, hann er búinn að vera fyrstur síðustu 2 skipti.

 Gáta:Hvernig getur þú borðað egg án þess að brjóta skurnina?

 Gangi ykkur vel

Kv Spaðinn


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 12:10:11 / siggirunki

Þríbrotin þríkringla

Það er 9 gráðu hiti í Elliðárvatni núna,, svo að veiðin hlýtur að vera í algleymi, ef algleymi er til. Brandur vinur minn sem einmitt fékk skvísuna mína í afmælisgjöf, fór í gærkvöldið og mokveiddi þarna. Maður er iðandi í öllum líkamanum mann langar svo að fara að veiða,, en ég tými bara ekki að fara frá stelpunum. Þannig að ég held að ég fari niður í kjallara, nái í fluguhnýtingardótið mitt og hnýti nokkra peacocka. Þá er ég klár í veiðina,, bara eftir að þræða stöngina og byrja að kasta J púff.......mig langar svo að fara.....

 Ég veit ekki hvað gerðist en, allt í einu hrapaði heimsóknafjöldinn á síðuna mína niður um 100 á dag,,,, ég bara skil þetta ekki,, þó að gestirnir (þeir fáu sem enn lesa) séu fyrsta flokks, eðal fólk og turbó. Þá er ekki mjög hvetjandi að skrifa fyrir svo fáa..... ég meina,, Litla stelpan mín fær um það bil 200 heimsóknir á dag,,, og Evert var að blogga um að hann fengi allt að 300 heimsóknir á dag...... Af hverju er ég ekki svona vinsæll.... Kannski skipta gæðin meira máli en magnið,, ekki satt?

 Hver ætlar að hjálpa mér núna,, ég get ekki sett inn myndir á bloggið mitt. Ég sé að allir eru alltaf að setja myndir/myndbönd inn á milli málsgreina hjá sér,, en hún kemur ekki inn hjá mér. Það kemur bara svona rammi með rauðu X í horninu. Hver er fixalottinn í þessum málum? 

Fórum með hnátuna í “5 daga” skoðun í morgun (morgunnnnnnnnn). Læknirinn var frekar leiðinlegur og var eitthvað að kreista hana og kremja, lýsa upp í augun á henni, pota í eyrun og svona leiðinlegheit. Þannig að hún tók sig bara til, og sprændi svaka gusu á þennan leiðinlega kall. Flott hjá henni. En annars er hún eins heilbrigð og hægt er að vera. Hún jaðrar við að vera “Hero”. Naflastrengurinn datt af í nótt og hún var sú eina í skoðuninni sem var með sætan venjulegan nafla. Eins og amma sagði alltaf við eldhúsborðið þegar hún var að horfa á okkur frændsystkinin út um gluggann. “Það er alveg makalaust stelpur hvað börnin mín eru alltaf lang lang fallegust.” Það sama átti við í þetta skipti.

 Gáta: Hvað er það sem hækkar þegar af fer höfuðið? 

Súpa og brauð í hádeginu.... byrja að malla.

 Spaðinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 21:04:21 / siggirunki

Tímapantanir milli 10 og 23

Hvaða afskiptaleysi er þetta,, mér finnst það algerlega miskilið að fólk haldi að maður vilji bara vera látinn í friði með barnið,, við fengum að vera það á fæðingardeildinni og svo erum við ein saman á nóttunni.. Auðvitað vill maður fá fólk í heimsókn til að geta montað sig svolítið af Englinum sínum. Endilega hringið bara á undan ykkur svo það hitti ekki á að ljósmóðirin sé í heimsókn, því þá vilja mæðgurnar fá smá næði. 

Svo var ég að eignast nýjan nágranna,, gamall samstarfsfélagi minn og lærifaðir Kjartan Gíslason kokkur á Óðinsvé Sigga Hall, var að kaupa sér íbúð hérna á neðstu hæðinni í sama stigagangi og ég bý í,,, til hamingju með nýju íbúðina Kjartan,, það verður ekki langt fyrir mig að komast heim úr kokkapartýum héðan af.. haha. Svo voru vitleysingarnir á mið hæðinni víst reknir út í gær, leigjandinn neyddist til að henda þeim út sökum ýmissa látalæta,, þannig að við erum laus við þau og sennilega ungt par  að koma í staðinn. Það er gott, þá kannski losna ég út úr þessum gjaldkeraleiðindum, ég ræð fólki frá því að taka að sér þá stöðu. 

Búinn að vera rosa duglegur að láta Guðrúnu borða,, ljósmóðirin segir að það gleymist stundum í öllum látalátunum,, ég gerði fiskibollur í karrý í gærkvöldið, svo var aspassúpa eins og amma gerði alltaf í hádeginu í dag með smurðu brauði með agúrku. Svo sauð ég ýsu upp á gamla mátann í kvöld með kartöflum, smjörsoðnum lauk og hamsatólg,, það var æðislegt að fá þetta í matinn,, maður var búinn að gleyma hvað þetta er gott.  Er að spá í að hafa soðnar kjötbollur með soðnu hvítkáli, kartöflum og bræddu smjöri á morgun,, kannski Þórir frændi komi þá hlaupandi,, ég held að það sé uppáhaldið hans. 

Svo er ekki laust við að mann sé farið að langa í einn öllara með frændunum, kannski þegar Sigfús kemur til landsins ? 

Kv Spaðinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 13:58:11 / siggirunki

Hjartað mitt komið

Jæja,, það hlaut að koma að því,, stelpan lét sjá sig aðfararnótt laugardags klukkan 5.41 hún vó 4130 grömm eða 16 merkur,, var alger langites eins og pabbi og mamma eða 55 sentímetrar. Ég get ekki lýst tilfinningunni sem skall yfir mig þegar hún kom í heiminn,, hvað þá þegar hún var sett í fangið á mér,, ég er ennþá með kökk í hálsinum og þarf ekki mikið til að framkalla gleðitár. Þetta er ólýsanlegt. Samt var nú ekki gaman að horfa á ástina sína kveljast svona mikið og geta ekkert gert nema horft á. Ekki hægt að kyssa eða faðma eða nudda eða hughreysta á nokkurn hátt án þess að vera ýtt í burtu, því hún þurfti allt það súrefni sem hún gat. En sem betur fer nægði henni nú bara að ég væri þarna hjá henni.

  Við erum komin heim núna og erum bara að reyna að slaka aðeins á. Guðrún er að reyna að sofa og litla sefur hérna við hliðina á mér. Við vorum búin að lesa sögur úr bók sem heitir “Konur með einn í útvíkkun fá enga samúð” og þar voru sögurnar af ljósmæðrunum alveg hræðilegar, eins konar hryllingssögur. En raunin var nú önnur,,, allar konurnar þarna á Hreiðrinu eiga margföld verðlaun skilið fyrir að vera yndislegar.. takk fyrir okkur ef einhver ykkar les þetta.  

Nú tekur við foreldrahlutverkið,, þarf að fara að skipta á kúkableyju J haha....sem er mun auðveldara en ég hélt. 

Kveðja

Spaðinn og hjarta fimman.


» 10 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 20:01:22 / siggirunki

Allt komið af stað,,,, er að pakka niður í tösku

Jæja nú eru komnar hríðir á svona 5 mínútna fresti,, var að koma heim úr vinnunni,, og er að spjalla við marga í einu svo að bloggið verður ekki langt núna. Fleiri fréttir koma eins fljótt og hægt er.

 

Kv Spaðinn og línan á leiðinni út hvað á hverju. :)


» 12 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 12:16:10 / siggirunki

Bara orðinn vinsæll (eða orðin) :( :)

Vá hvað er að gerast,,, bara allt í einu komu 150 heimsóknir og 10 comment,,, hvað er að gerast,, er ég svona skemmtilegur eða er fólk bara að kíkja eftir litla barninu sem enn er í bumbunni? Ég er mikið að velta fyrir mér trampólíntrikkið hennar Steinunnar.

 Svarið við gátunni er tvær,, burt séð frá því hvort menn vilji meina að menn hafi ekki lappir,, í þessu tilviki hafa þeir lappir amk... trikkið í gátunni var “að” og “af”,,,Evert var fyrstur að svara rétt,, með bumbubúasamlíkingunni,, svo tók Sigfús eina þriggjastiga í gegnum Bylgju. haha

Emil minn eg er ekki góður í gátum en ef ég mætti giska á þína það myndi ég giska á að húsið sé ansi lítið ef það á eitthvað að bera það við mús,,,,?kannski fólk vilji svara þessu?

 Hvað er minna en mús, og hærra en hús, dýrara en öll Danmörk ef það fengist ekki? Emil á svarið.

 Erum að fara í mæðraskoðun á eftir,, planið var að panta tíma í einhvern mónitor í dag,, svo ætti bara að setja þetta allt manual af stað á þriðjudaginn ef það neitar enn að koma út þá.... það gæti nú bara komið á afmælisdaginn þinn Soffía mín. 

 Gaman að sjá ný andlit að kommenta. Hvar ætli múmínsnáðinn hafi náð í bloggið mitt? 

Sól sól skín á mig, ský ský burt með þig,, takk fyrir einsönginn Evert minn.. hahaha

 

 

Vá hvað þetta var innihaldslítið blogg  

Kv spade


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 14:52:15 / siggirunki

Óþekk stelpa!!!!!!!!

Góðan daginn,, mig vantar smá uppeldisráð með stelpuna mína,, ég ræð engan veginn við óþekktina í henni,, hún bara neitar að koma út,, ég er búinn að prófa allt,, búinn að biðja hana fallega og syngja fyrir hana,, búinn að raskella hana þar sem hún virðist hafa gaman af að ýta rassinum út í loftið, en hún bara hlýðir ekki,, hvað á ég að gera? .......kv pabbi í vandræðum  

Fréttir frá VOX,, búið er að ráða nýjan yfirkokk í stað Sigga Gísla,, var svolítið óvænt þar sem ég hélt allan tímann að Halli yrði ráðinn sem nýji cheffinn en svo fór ekki,, nýji yfirkokkurinn heitir Gunnar Karl,, hann var einusinni sous chef á VOX og hefur nú snúið til baka og ætlar að koma og rokka það með okkur,, það verður örugglega bara gaman. 

Alltaf gaman að mæta á vaktina og sjá undrunaránægusvip þeirra sem ekki bjuggust við manni sökum barns sem átti að vera komið í heiminn fyrir löngu.. Við gerðum nýjan dessertseðil í gær á honum er skyr með Yllisblóma súpu og yllisblómaískrapi,, yllisblóm er blóm sem vex í Danmörku og heitir Hyldeblomst,, rosalega gott.. Svo erum við með nýstárlega útgáfu af hjónabandssælu,, Sjóðandi heit rabbarbarabaka fyllt með ensku kremi,, með henni er gefinn hægsoðinn sætur rabbarbari, crókant kex, lakkrísrótarparfait og rabbarbara sorbet,,, hrikalega gott. Svo ákváðum við að halda inni súkkulaðibombunni sem við vorum með á síðasta seðli,, algjör bomba. 

Gáta: Maður fór að fjalli,, þá mætti hann karli,, með karlinum voru kindur sjö og hverri þeirra lömbin tvö. Hve margar lappir fóru að fjalli?

 Kv

ACE


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 16:02:00 / siggirunki

Naut og bearnaise....Í sól og sumaryl

ÉG smúlaði vetrarskítinn af grillinu í gær og bauð Pálma og kærustunni hans og fósturdóttir í heimsókn. Við grilluðum ungnautalund sem ég fékk fyrir markaðsvinnu hjá Sláturfélagi Suðurlands, Lambakótilettur kryddaðar með íslensku garðablóðbergi, tómatar, sveppir, zhucciní, laukur, og Klettasalat með appelsínuconfit og fræblöndu......Og síðast en ekki síst BEARNAISE mmmmmmm.  Í eftirrétt var þungaða konan mín búin að gera rice crispies köku og ég grillaði banana með súkkulaði inní,, með þessu var gefinn ítalskur ís með einhverju konfekti í alveg geggjað.... ég er kominn í svaka sumargír..

 Var að horfa á kosningasjónvarpið,, það var verið að ræða við oddvita allra stjórnmálaflokkanna,, ekki það að ég hafi mjög gaman af pólitík en þetta er mjög illa gerður þáttur af mínu mati,, þarna er þetta virðulega fólk sem á eftir að vera stjórnendur þjóðarinnar stillt upp við vegg og spurð spjörunum úr eins og í hraðaspurningum gettu betur,, aumingja fólkið þurfti að svara óhugsuðu máli og alltaf var sagt við þau “Örstutt, Ómar” “Örstutt Kolbrún” og svo í lok þáttarins sagði féttakonan “ Það eru tvær og hálf mínúta eftir af þættinum, svo að örstutt allir hvað er fólk að kjósa í vor?” Og þá fengu allir 20 sek til að svara því.... Þetta finnst mér niðrun til þessa fólks sem maður á að treysta,, það er bara niðulægt með svona amateur vinnubrögðum fjölmiðlanna í stað þess að fækka spurningunum og kannski lengja þáttinn. Asnalegt.

 Bíðum og bíðum og bíðum og bíðum.............hvar er barnið? 

Ásinn  


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 11:09:45 / siggirunki

En pravda brann og fólkið fann,, sér annan samastað,, í hugum margra var það brotið blaaaaaaaaaað

Jæja þá er komið að lönguvitleysunni,, í dag er 20 apríl, og barnið ekki enn komið,, það er semsagt komið 1 dag yfir settan tíma,, ég held að það fari alla dagana yfir settan tíma og þurfi að vera sett af stað svo í endann,, en því líður ofsa vel,,, það er alltaf að snúa sér og sprikla,, hjartslátturinn er alveg bjútí og ljósmóðirin heldur að það verði um 16 merkur. Sagði svo við Guðrúnu að hún færi nú létt með það haha þ.e.a.s að koma því í heiminn.. Hvernig veit hún það,, ég er búinn að horfa á nokkrar fæðingar og engin kona sem ég hef séð hefur talað um að þetta sé eitthvað létt!!!!! Er hún algjör kjáni?

 Flottar myndir hjá Silju systir (sjá comment frá síðasta bloggi) af mér og henni,, haha,, það væri nú samt gaman að bæta við myndum af emil og pabba haha,, rosa fríð familí. 

Það hefur nú sennilega ekki farið framhjá neinum bruninn í miðbænum í fyrradag,, vá,, þetta var rosalegt.. það er ekki á hverjum degi sem maður sér með berum augum í rosa góðu veðri 3ja metra eldttungur standa út um glugga og þök á veitingstöðum! 5 staðir brunnir til kaldra kola,, Café opera,, Rosenberg, Kebab, Fröken Reykjavík og Pravda.. núna er bara HOLA í jörðinni þar sem Pravda var. Þetta er nú meiri geðveikin. Samt finnst mér nú ágætt að losna við þessi gömlu hálf ónýtu hús,, bara byggja ný í staðinn sem líta alveg eins út og þá er kannski hægt að fara inn í þau án þess að vita til þess að viðarbitarnir undir löppunum á manni eru ekki 206 ára gamlir eins og Konungshöllin gamla var orðin. 

Foie gras smakkið var frábært,, kjúklingalifrar(foie gras ið) var stóð sig með prýðum,, það var alveg frábært en að sjálfsögðu jafnast ekkert á við foie gras,, en við átum yfir okkur af þessu og mér var illt í maganum í heilan dag á eftir,, það skánaði ekki maginn á því að grípa aðeins í Nintendo Wii eftir matinn en samt frábært.. Gunni grillaði bleikju í aðalrétt sem var alveg frábær.. Ég mæli með að fólk byrji að grilla eins fljótt og það getur því það kemur manni í sumarskapið. 


Nýji matseðillinn kominn í gang rosa flottur gekk allt vel......ég mæli með að fólk komi og gæði sér á einhverjum af réttunum okkar.........

Langar í Nintendo Wii 

Spaðinn


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 10:20:08 / siggirunki

Hey CHILL DUDES

Ekkert barn komið ennþá,, en Guðrún er farin að verða ansi óþolinmóð. Hún sagði núna í morgun að nú væri hún eitthvað að bralla þarna inni því hún væri búin að vera svo róleg og litlar sem engar hreyfingar haf komið í dag. Hún er nú ekki sett fyrr en á Fimmtudaginn.  

 

Eins gott að hún fór ekki af stað í gær því íbúðin var í rúst... haha. Hér var verið að skrúfa saman kommóðu fyrir barnfötin, skrúfa saman vögguna fyrir barnið,, mála svefnherbergið,, því voru öll fötin tekin út úr fataskápnum og sett í sófann,,, verkfæri út um allt, verið að losa stíflu í baðherbergisvaskinum, allar innstungur og ljósarofar teknir af til að mála í kringum þær. SEMSAGT allt í hers höndum. nú er ég að fara að setja upp gardínur. Og taka loka skúringuna áður en krílið kemur,, maður má ekki hafa þetta allt í drasli ef ske kynni að hún myndi bara ekki fíla okkur og fara bara til einhverra annarra foreldra haha.

 

 

Já og gaman að segja frá því að greiðslurnar úr orlofsjóðnum eru 70.000 kr hærri en launin sem eg fæ útborguð í vinnunni núna. Sem er vegna míns hálaunaárs eftir útskrift á Hótel Borg,, Alltaf að græða,, óheppinn að börnin voru ekki 2 :(  Samt væri gott ef hún kæmi ekki fyrr en í næstu viku,, því það er nýr matseðill á VOX á fimmtudaginn sem er einmitt dagurinn....Sumardagurinn fyrsti.... Mig langar nefninlega ekki að missa af honum,, mjög flottur matseðill,, á honum eru Sænskur elgur,, Íslenskur smágrís, nautakinnar, lambabris, lambakæfa, lambatunga, túnsúrugrafin smálúða, reyktar gellur og Soðinn þorskur með foie gras, svo eitthvað sé nefnt,, mjög spennandi. Enginn er ómissandi en ég held samt að mín yrði sárt saknað ef ég myndi ekki vera með þeim á miðvikudag fimmtudag. Nýji dessert seðillinn er svo í næstu viku,, getur hún ekki bara beðið fram yfir það líka!!!!

Haha. Gleðilegan sólardag kæru íslendingar,, lofthiti okkar í dag er 5 °c og það er Glampandi sól. Hérna á svölunum hjá mér er 21°C í steikarapotti. Ég veit nú ekki hvernig veðrið er úti hjá þér Evert minn, ég ég veit að það er bongó hjá Sigfúsi, ég heyrði í Pálma í gær, hann var úti í Danmörku sagði mér að það væri 20°c og Sól frábært. 

 Ekkert barn, rífa upp garn, og,og,og, prjóna Sumarpeysu haha. 

Spaðinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Hva�?�?�?° segiru �?�?�?¡kk�?�?�?ºrat......!n�?�?�
breyti í spaða
Lj�?�?�?³si�?�?�?° mitt f�?�?�?¦ddist
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734541 dögum
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Dagsetning
9. febrúar 2012
Leitarbox

RSS tengill
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 24 september